fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimÍþróttirSundHjörtur Már setti heimsmet í 1500 m skriðsundi

Hjörtur Már setti heimsmet í 1500 m skriðsundi

Sló vikugamalt heimsmet

Hjörtur Már Ingvarsson, 21 árs Hafnfirðingur og sundmaður í Íþróttafélaginu Firði, setti nýtt heimsmet í 1500 m skriðsundi í flokki hreyfihamlaðra á Landsbankamótinu í Reykjanesbæ um síðustu helgi. Hjörtur synti þá á 25,20.22 mínútum

Hjörtur keppir í flokki S6 sem er flokkur hreyfihamlaðra en flokkar hreyfihamlaðra í sundi eru S1-S10 en S1 er þá flokkur þeirra sem hafa mesta fötlun.

Glæsilegur árangur hjá Hirti en aðeins rúmri viku áður heimsmetið í greininni sett í 26.00,21 mín. en Hjörtur sá til þess að það metið varð ekki langlíft.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2