Anton Sveinn Mckee, Dadó Fenrir Jasminuson og Ingibjörg Kristín Jónsdóttir úr SH náðu öll þátttökurétti á HM eftir að hafa náð lágmörkum á Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug sem haldin var í Ásvallalaug um helgina.
Stóðu SH-ingar sig gríðarlega vel og settu eða jöfnuðu 16 Íslandsmet! Voru 40 keppendur af 171 frá SH og kepptu þeir í samtals 175 greinum.
Alls fékk SH 21 gull, 11 hjá konum og 10 hjá körlum, 16 silfur, 7 hjá konum og 9 hjá körlum og 14 brons, 4 hjá konum og 9 hjá körlum.
Þrjú gull og jöfnun á Íslandsmeti hjá Dadó
Dadó Fenrir jafnaði 9 ára gamalt Íslandsmet í 50 metra skriðsundi á 22,29 sekúndum en lágmarkið á HM er 22,47 sekúndur.
Hann sigraði einnig í 100 m skriðsundi á 45,59 sekúndum og í 100 m flugsundi á 55,07 sekúndum.
Íslandsmet hjá Antoni Sveini McKee
Anton Sveinn synti á 59,70 sekúndum í 100 metra bringusundi, 51/100 úr sekúndu undir HM lágmarkinu. Anton á Íslandsmetið í greininni á 58,66 sekúndum frá því í Berlín í fyrra.
Anton Sveinn bætti svo 9 ára gamalt Íslandsmet Jakobs Jóhanns Sveinssonar í 200 m bringusundi er hann synti á 2,07.04 mínútum sem er undir HM lágmarkinu. Bætti hann Íslandsmetið um 71/100 úr sekúndu.
Ingibjög var hætt en náði lágmarki á HM
Þá náði Ingibjörg Kristín Jónsdóttir úr SH lágmarki í 50 metra baksundi, en tími hennar var 27,95 sekúndur. Hún var 1/100 úr sekúndu undir lágmarkinu fyrir HM, en hún er fyrsta íslenska konan sem nær lágmarki á HM í ár.
Ingibjörg sigraði einnig í 50 m skriðsundi þar sem hún bætti sinn besta tíma og í 50 m flugsundi.
Ingibjörg hætti æfingum og keppni í byrjun árs en eftir hvatningu frá félögum í SH tók hún ákvörðun, 11 dögum fyrir mót að keppa. Hún hafði lítið synt en var þó í mjög góðri líkamlegri þjálfun.
Árangur SH-inganna
Verðlaun | Sundgrein | Nafn | Aldur | Tími |
---|---|---|---|---|
Gull | 100 m bringusund karla | Anton Sveinn McKee | 25 | 59.70 |
Gull | 200 m bringusund karla | Anton Sveinn McKee | 25 | 2:07.04 |
Gull | 50 m bringusund karla | Aron Bjarki Jónsson | 17 | 30.46 |
Gull | 50 m skriðsund karla | Dadó Fenrir Jasminuson | 23 | 22.29 |
Gull | 100 m skriðsund karla | Dadó Fenrir Jasminuson | 23 | 49.59 |
Gull | 100 m flugsund karla | Dadó Fenrir Jasminuson | 23 | 55.07 |
Gull | 50 m skriðsund kvenna | Ingibjörg Kristín Jónsdóttir | 25 | 25.63 |
Gull | 50 m baksund kvenna | Ingibjörg Kristín Jónsdóttir | 25 | 28.26 |
Gull | 50 m flugsund kvenna | Ingibjörg Kristín Jónsdóttir | 25 | 27.85 |
Gull | 100 m skriðsund kvenna | Jóhanna Elín Guðmundsdóttir | 17 | 57.13 |
Gull | 100 m flugsund kvenna | Katarína Róbertsdóttir | 18 | 1:02.46 |
Gull | 100 m fjórsund kvenna | Katarína Róbertsdóttir | 18 | 1:04.09 |
Gull | 100 m baksund karla | Kolbeinn Hrafnkelsson | 24 | 55.01 |
Gull | 50 m flugsund karla | Kolbeinn Hrafnkelsson | 24 | 24.94 |
Gull | 200 m fjórsund kvenna | María Fanney Kristjánsdóttir | 18 | 2:19.81 |
Gull | 400 m fjórsund kvenna | María Fanney Kristjánsdóttir | 18 | 4:58.63 |
Gull | 4 x 100 m skriðsund kvenna | SH 1 | 3:52.87 | |
Gull | 4 x 200 m skriðsund kvenna | SH 1 | 8:38.78 | |
Gull | 4 x 100 m fjórsund kvenna | SH 1 | 4:16.15 | |
Gull | 4 x 100 m skriðsund karla | SH 1 | 3:24.31 | |
Gull | 4 x 100 m fjórsund karla | SH 1 | 3:50.83 | |
Silfur | 100 m bringusund karla | Aron Bjarki Jónsson | 17 | 1:06.80 |
Silfur | 50 m flugsund karla | Dadó Fenrir Jasminuson | 23 | 24.97 |
Silfur | 100 m fjórsund karla | Daði Björnsson | 14 | 1:01.77 |
Silfur | 200 m skriðsund karla | Hafþór Jón Sigurðsson | 21 | 1:56.05 |
Silfur | 400 m skriðsund karla | Hafþór Jón Sigurðsson | 21 | 4:07.38 |
Silfur | 50 m skriðsund kvenna | Jóhanna Elín Guðmundsdóttir | 17 | 25.87 |
Silfur | 100 m flugsund kvenna | Jóhanna Elín Guðmundsdóttir | 17 | 1:03.18 |
Silfur | 100 m baksund kvenna | Katarína Róbertsdóttir | 18 | 1:03.44 |
Silfur | 50 m flugsund | Katarína Róbertsdóttir | 18 | 28.29 |
Silfur | 50 m skriðsund karla | Kolbeinn Hrafnkelsson | 24 | 23.50 |
Silfur | 50 m baksund karla | Kolbeinn Hrafnkelsson | 24 | 25.31 |
Silfur | 200 m bringusund kvenna | María Fanney Kristjánsdóttir | 18 | 2:35.10 |
Silfur | 100 m flugsund karla | Ólafur Árdal Sigurðsson | 19 | 58.63 |
Silfur | 400 m fjórsund karla | Róbert Ísak Jónsson | 17 | 4:42.63 |
Silfur | 50 m bringusund kvenna | Sunna Svanlaug Vilhjálmsdóttir | 18 | 33.63 |
Silfur | 100 m bringusund kvenna | Sunna Svanlaug Vilhjálmsdóttir | 18 | 1:12.31 |
Brons | 400 m fjórsund karla | Aron Þór Jónsson | 16 | 4:43.67 |
Brons | 50 m bringusund karla | Daði Björnsson | 14 | 31.65 |
Brons | 100 m bringusund karla | Daði Björnsson | 14 | 1:06.83 |
Brons | 200 m bringusund karla | Daði Björnsson | 14 | 2:24.73 |
Brons | 50 m flugsund kvenna | Jóhanna Elín Guðmundsdóttir | 17 | 28.30 |
Brons | 200 m baksund karla | Júlíus Karl Maier | 16 | 2:14.73 |
Brons | 50 m skriðsund kvenna | Katarína Róbertsdóttir | 18 | 26.49 |
Brons | 200 m flugsund kvenna | Kristín Ylfa Guðmundsdóttir | 16 | 2:30.33 |
Brons | 100 m bringusund kvenna | María Fanney Kristjánsdóttir | 18 | 1:12.75 |
Brons | 100 m skriðsund karla | Ólafur Árdal Sigurðsson | 19 | 53.18 |
Brons | 50 m flugsund karla | Ólafur Árdal Sigurðsson | 19 | 26.44 |
Brons | 100 m flugsund karla | Róbert Ísak Jónsson | 17 | 59.12 |
Brons | 4 x 200 m skriðsund karla | SH 1 | 8:07.20 | |
Brons | 50 m baksund kvenna | Steingerður Hauksdóttir | 22 | 29.82 |