Þrír sundmenn úr Sundfélagi Hafnarfjarðar synda á EM í sundi í 50 m laug sem nú stendur yfir í Búdapest í Ungverjalandi. Það eru þau Dadó Fenrir Jasminuson, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Steingerður Hauksdóttir.
Steingerður keppti í 50 metra baksundi í morgun og bætti hún besta tíma sinn um 3/100 úr sekúndu og kom þriðja í mark í sínum riðli og varð í 40. sæti og komst ekki áfram.
Hún keppti í gær í 50 m skriðsundi og varð 53. á tímanum 26,98 sekúndum, sem er heldur frá hennar besta tíma.
Jóhanna Elín keppti í 50 m skriðsundi í gær og náði sínum besta tíma, 26,18 sek., og varð 47. í greininni.
Dado keppir næstur SH-inga á fimmtudag.
Dadó Fenrir Jasminuson – SH
20. maí – 50 m flugsund
22. maí – 50 m skriðsund
22. maí – 4×100 m skriðsund blandað
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir – SH
17. maí – 50 m skriðsund
21. maí – 100 m skriðsund
22. maí – 50 m flugsund
22. maí – 4×100 m skriðsund blandað
Steingerður Hauksdóttir – SH
17. maí – 50 m skriðsund
18. maí – 50 m baksund
Kristinn Þórarinsson – Fjölnir
17. maí – 50 m baksund
19. maí – 100 m baksund
22. maí – 4×100 m skriðsund blandað
Snæfríður Sól Jórunnardóttir – Aalborg
19. maí – 200m skriðsund
21. maí – 100m skriðsund
23. maí – 400m skriðsund
22. maí – 4x100m skriðsund blandað