Víðavangshlaup Hafnarfjarðar verður haldið að venju á sumardeginum fyrsta og hefst hlaupið kl. 11. Er hlaupið ætlað öllum aldurshópum og börnin eru sérstaklega velkomin.
Þau yngstu hlaupa um 200 m en 15 ára og eldri hlaupa um 2 kílómetra.
Ekkert kostar að taka þátt og ekki þarf að skrá sig en mikilvægt að mæta tímanlega.
Hlaupið er eftirfarandi flokkum og í þessari röð. Strákar og stelpur keppa sér í öllum flokkum nema 15 ára og eldri. Fyrsta hlaup er kl. 11.00.
- 15 ára og eldri (fædd 2002 og fyrr) hlaupa um 2.000 m
- 6 ára og yngri (fædd 2011 og síðar) hlaupa um 200 m
- 7-8 ára (fædd 2009 og 2010) hlaupa um 300 m
- 9-10 ára (fædd 2007 og 2008) hlaupa um 400 m
- 11-12 ára (fædd 2005 05 2006) hlaupa um 600 m
- 13-14 ára (fædd 2003-2004) hlaupa um 1.000 m
Allir fá viðukenningarpening í lokin en einnig eru veitt verðlaun fyrir efstu þrjú sætin.
Undanfari er með yngstu keppendunum og foreldrar hvattir til að fylgjast rólegir með á hliðarlínunum.