Um 200% fjölgun hefur verið undanfarin ár í barna- og unglingastarfi hjá Golfklúbbnum Keili að sögn Karls Ómars Karlssonar, íþróttastjóra Keilis en hann er staddur á Spáni í 62 manna hópi á vegum Keilis en 35 krakkar eru þar í æfingabúðum.
„Vegna þessa áhuga hefur Keilir ákveðið fjölga þjálfurum og efla þannig starfið til muna,“ segir Karl.
Þrískipt starf

„Það má segja að barna- og unglingastarfið skiptist í þrennt, við erum með Golfleikjaskólann á sumrin fyrir 5-11 ára krakka og hefst hann strax eftir að skóla lýkur í vor. Svo erum við með almennar æfingar fyrir börn frá leikskólaaldri til 21 árs ungmenna. Þar eru æfingar 10-11 mánuði ári og tvisvar til þrisvar í viku. Auk þess er hægt að taka þátt í afreksefnastarfi og afreksstarfinu fyrir keppnishópana í golfi. Keppnishópar eru allt frá 9 ára aldri og upp í fullorðna.“

Frábær aðstaða
Aðspurður segir Karl að æfingaaðstaðan á Hvaleyrinni sér gríðarlega góð. „Á veturnar er frábær aðstaða hjá okkur í Hraunkoti en þar eru fullkomnir golfhermar, púttvöllur og félagsaðstaða,“ segir Karl og bætir við að úti undir skýli sé líka mjög góð aðstaða á skv. mottusvæði sem hægt er að slá kúlu út á völl í skjóli fyrir vindum. Segir hann að þar sé hægt að æfa fjölbreytt högg og hafa leiðsögn kennara.

Bjóða kynningar í vor
Golfklúbburinn Keilir ætlar í vor að bjóða nemendum 4., 5. og 6. bekkja grunnskóla í Hafnarfirði að koma í heimsókn í Hraunkotið með umsjónarkennara til að fá kynningu á golfíþróttinni. Umsjónakennarar þessa bekkjardeilda í Hafnarfirði geta haft samband við Keili og fengið golfkynningu í 2-3 klst. í maí og fyrir skólalok.

Eftir það verður nemendum boðið til að mæta á golfæfingar í nokkur skipt sér að kostnaðarlausu.
Hvetur Karl umsjónarkennara til að hafa samband við sig sem fyrst. Senda má fyrirspurnir á kalli@keilir.is

