Bátasmíði og viðgerðir hafa verið snar þáttur í bæjarmynd Hafnarfjarðar síðustu öld og jafnvel um aldir. Nú er bátasmíði lítt áberandi en eingöngu eru hér í bæ smíðaðir plastbátar innanhúss. Ekki skal gera lítið úr þeirri bátasmíði og flestir bátanna eru öflugir bátar sem margir eru seldir til útlanda. Skipaviðgerðir fara fram í skipakvíum og við bryggju en eina dráttarbrautin sem eftir er í bænum er gamla dráttarbrautin í Drafnarslippnum sem má muna fífil sinn fegri. Nokkuð er síðan skip var dregið þar á land og bæjarbúar muna líflegt starf við skipin í dráttarbrautinni.
Mynd dagsins er tekin í Drafnarslipp er tekin 1976 þegar enn var nokkuð öflug starfsemi í Skipasmíðastöðinni Dröfn.