fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirSkipulagsmálAf skipulagsmálum

Af skipulagsmálum

Hilmar Ingimundarson skrifar.

Núverandi meirihluti í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur ekki setið auðum höndum á fyrri helmingi núverandi kjör­tímabils. Formaður skipulags- og byggingarráðs, Ingi Tómasson, hélt áhugaverða kynningu ný­­verið á fyrirhuguðum fram­kvæmd­um og uppbyggingu íbúðahúsnæðis næstu árin í Hafnarfirði. Loks sér fyrir end­ann á tilfærslu Hamranes­línu sem hefur lengi verið þyrnir í aug­um Hafnfirðinga og er löngu tímabært að færa hana fjær byggð. Það opnar á nýja byggð suður af Völlum þar sem um deiliskipulag gerir ráð fyrir 537 íbúðum af öllum stærðum. Rétt er að hvetja alla til að kynna sér það áhugaverða svæði og þær lóðir sem eru í boði á mjög að­gengilegri síðu. Slóðina má finna á skardshlidin.is.

Uppbygging í Skarðs­hlíðinni gengur vel og er útlit fyrir að ekki verði langt í að það svæði verði fullmótað. Sérstaklega athyglisvert var að sjá breytingar á Aðalskipulagi fyrir Ásvelli þar sem fjölbýlishús móts við sundlaugina koma til með að rísa, á landi sem áður taldi til Hauka. En mesta athygli vekja fyrirhuguð áform við höfn­ina sem vænta má að taka muni miklum breytingum til hins betra með aukinni byggð og opnum svæðum sem munu bæta ásýnd þessa fallega hluta bæjarins og mynda heil­steyptari mynd með núverandi miðbæ. Niðurstöður sam­keppni um svæðið hafa skilað stefnu­mótun um gagngerar end­u­rbætur á svæðinu í takt við breytta tíma og nýtingu í anda þess sem við höfum verið að sjá gerast í löndunum í kringum okkur. Þetta ætti að glæða svæðið auknu lífi og bæta nýtingu á þess.

Að lokum er rétt að víkja að vinnu á „5 mínútna“ hverfinu svokallaða, en það er vinnuheitið á uppbyggingaráformum frá Engidal að Flatahrauni og Fjarðarhrauni. Skipulag fyrir fyrsti áfanga þess svæðis er lokið og liggur fyrir hjá Skipulagsstofnun til endanlegrar samþykktar. Þar má vænta yfir 3000 íbúða byggðar með allri þjónustu í göngufæri og gjörbreytingu á því svæði frá því sem við þekkjum það í dag. Þannig virðist margt vera á döfinni og uppbyggingar að vænta um allan bæ á þessu kjörtímabili, en yfir 1000 íbúðir eru áætlaðar á þeim svæðum sem hafa nú þegar verið samþykkt og eru á leið eða nú þegar komin í útboð og upp­bygg­ingarferli. Þegar svo mikil og jákvæð uppbygging á sér stað í bæjarfélaginu okkar, sem vænta má að leiði til fólks­fjölgunar sem nema mun 2-3000 manns þá liggur beint við að spyrja hvernig skipulagi og nauð­syn­legum fram­kvæmd­um í samgöngumálum miðar.

Hvernig ætlum við að bæta á núverandi samgöngukerfi og hver eru áform um eflingu almenningssamgangna og ú­rlausnir á núverandi flöskuhálsum í gatnakerfi bæjarins sem við Hafnfirðingar stöndum frammi fyrir? Þar er ekki síst við að glíma þjóðvegaframkvæmdir, sem eru á verksviði ríkisins. Þær geta ráðið úrslitum um það hvort og hvenær metn­aðar­full áform bæjaryfirvalda um upp­byggingu íbúðarhúsnæðis samkvæmt aðalskipulagi geti gengið eftir. Það er e.t.v. viðfangsefni, sem kynna þyrfti frekar og gæti verið efni í aðra grein.

Hilmar Ingimundarson, ráðgjafi og áhugamaður um skipulagsmál.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2