fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimUmræðanÁlögur hækka hjá þeim sem síst skyldi

Álögur hækka hjá þeim sem síst skyldi

Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar:

Í fjölskylduráði birtast áherslur meiri­hluta Sjálfstæðisflokks og Fram­sóknarflokks og óháðra með skýrum hætti við gerð fjár­hags­áætl­unar. Þær felast í því að leggja auknar byrðar á viðkvæmustu hópa sam­félags­ins, þ.e. aldr­aða, öryrkja og tekjulága. Meirihlutinn stuðlar því að ójöfnuði og veg­ur að lífskjara­samn­ingun­um.

„Leiðréttingar“ meirihlutans

Gjaldskrá vegna heimaþjónustu fyrir aldraða og öryrkja hækkar um 24,5% og akstur fyrir aldraða hækkar um rúmlega 100%. Þannig vill meirihlutinn ná í auknar tekjur úr vösum aldraðra og öryrkja upp á tæpar 6 milljónir og kallar hækkanirnar leiðréttingar eins og gjaldskráin hafi verið röng þegar álögurnar voru lægri. Meirihlutinn gefur lífskjarasamningunum langt nef því Samband íslenskra sveitarfélaga beindi þeim tilmælum til sveitar­félaganna að þau hækki ekki gjaldskrár umfram 2,5% á næsta ári til að styðja við samningana

Leiga félags­legra íbúða hækkar um 21%

Meirihlutinn hyggst einnig sækja auknar tekjur í vasa tekjulágra einstaklinga í félags­lega íbúðakerfinu en meiri­hluti umhverfis- og fram­­­kvæmdaráðs hefur ákveð­ið að hækka leiguna um 21%. Enn liggja ekki fyrir nógu góðar upplýsingar um það hvaða áhrif þessi ákvörð­un mun hafa á leigjendur því einhverjir þeirra munu eiga rétt á sérstökum húsaleigubótum sem munu vega á móti hækkuninni en það er ljóst að hækkunin verður íþyngjandi fyrir stóran hóp leigjenda.

Tekjuhærri í skjóli

Á sama tíma og álögur eru auknar á hópa í viðkvæmri stöðu þá leggur meirihlutinn áherslu á að verja tekjuhæstu hópana með því að fullnýta ekki útsvarið. Samkvæmt upplýsingum sem undirritaður fékk við gerð síðustu fjárhagsáætlunar þá kom fram að fullnýtt útsvar á þessu ári hefði aukið tekjur bæjarsjóðs um tæpar 55 milljónir og fjölskyldusviðs um 10 milljónir. Aldraðir, öryrkjar og tekjulágir súpa nú seyðið af þessari for­gangsröðun meiri­hluta Sjálfstæðis­flokks og Fram­sóknarflokks og óháðra.

Verjum lífskjörin

Samfylkingin stendur vörð um kjarasamninga og jöfnuð. Tillögur meirihlutans um gjaldskrárhækkanir ganga í þveröfuga átt. Þær munu, nái þær fram að ganga, rýra lífsgæði þeirra sem höllustum fæti standa og vega að markmiðum lífskjarasamninganna. Jöfnuður og öflug velferðarþjónusta er grundvöllur réttláts samfélags og því mun Samfylkingin halda áfram að berjast gegn þessum áformum meiri­hlutans.

Árni Rúnar Þorvaldsson, fulltrúi Samfylkingarinnar í fjölskylduráði.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2