fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirPólitíkAukum áhrif íbúa Hafnar­fjarðar á sitt nærumhverfi!

Aukum áhrif íbúa Hafnar­fjarðar á sitt nærumhverfi!

Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

fjarðar á sitt nærumhverfi!
Í aðdraganda síðustu kosninga töluðu núverandi meirihlutaflokkar hér í bænum mikið um aukna að­­komu bæj­arbúa að ákvörð­unum um sitt nærumhverfi, íbúalýðræði skyldi eflt. Sátt­máli þeirra eftir kosningar, sem var grunn­­ur að samstarfi Sjálf­stæðisflokks og Bjartrar fram­tíðar, kvað á um þetta en minna hefur verið um efndir síð­ustu þrjú ár en efni standa til.

Á meðan nágrannasveitafélög okkar eru á hraðferð í þessa átt þá situr þriðja stærsta sveitarfélag landsins hjá og aðhefst lítið í þessa veru.

Í Kópavogi, þar sem ég hef starfað sem skólastjóri síðasta áratuginn, er mikill kraftur í verkefni sem nefnist Okkar Kópavogur og er samráðs­verk­efni íbúa og bæjarins um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til smærri nýframkvæmda – og viðhaldsverkefna í bænum. Í það verkefni fara ríflega 200 milljónir á yfirstandandi fjárhagsári.

Markmið slíks verkefnis er að hvetja íbúa til að taka þátt í málefnum sem varða nær­umhverfi þeirra. Íbúar leggja fram hugmyndir og útdeila fjármagni í smærri fram­kvæmdir á vegum bæjarins með íbúa­kosn­­ingu.

Í Reykjavík hefur einnig unnið ötullega að framkvæmd sambærilegs verkefnis á um­liðnum árum og ber verk­efnið þar heitið Hverfið mitt. Þar eru nýafstaðnar kosningar þar sem kosið var um fram­kvæmdir í hverfum borgar­inn­ar og þar eru 450 milljónir til ráðstöfunnar.
Það er leitt til þess að hugsa að íbúar í Hafnarfirði hafi ekki möguleika á svipuðum áhrifum á sitt nærumhverfi í gegnum lýðræðisleg verkefni eins og þau sem nefnd eru hér að ofan og hafa komist í framkvæmd í nágránna­sveitarfélögum okkar. Aukið íbúalýð­ræði ætti að vera okkur sem störfum fyrir hag og velferð bæjarbúa hér í bæ ofarlega í huga.

Ég hef í gegnum veru mína í umhverfis- og framkvæmdaráði vakið máls á þessu og barist fyrir því að stígin verði raunveruleg og markviss skref í þessa átt. Undir sjónarmið mín hafa fulltrúar meirihlutans tekið en þar fylgir ekki hugur máli í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 sem nú er til umfjöllunar í bæjar­stjórn. Þar hafa verið settar 10 milljónir í eitthvað sem kallað er íbúa­pottur í áætluninni. Að ætla svo lága upphæð í svo þarft verkefni er hjóm eitt og betur heima setið en af stað farið þegar hugur fylgir ekki betur máli en raun ber vitni hjá meirihlutanum í Hafnarfirði.

Íbúar Hafnarfjarðar eiga það skilið að þeim sé treyst þegar kemur að ákvörð­unum um nýframkvæmdir og við­haldsverkefni í þeirra nærumhverfi.

Að því þarf að vinna með krafti, áræðni og af heilum hug!

Friðþjófur Helgi Karlsson
varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
á sæti í umhverfis- og framkvæmdaráði

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2