Sjálfstæðisflokknum er sama þótt dómsmálaráðherra beri ábyrgð á því að setja dómskerfið í uppnám og gera nýtt dómsstig, Landsrétt, nánast óstarfhæft. Í ljósi þessa umburðarlyndis til vondra vinnubragða og spillingar þarf ekki að koma á óvart þó þeim finnist í góðu lagi að nota siðareglur kjörinna fulltrúa til þess að reyna að þagga niður í óþægilegri umræðu í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Það hefur Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði nú gert með formann skipulags- og byggingarráðs, Ólaf Inga Tómasson, í broddi fylkingar.
Neitar að vísa málinu áfram – eða biðjast afsökunar
Hann hefur sakað fulltrúa minnihlutans í bæjarstjórn, og þá sérstaklega Öddu Maríu Jóhannsdóttur, bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar, um að hafa brotið siðareglur kjörinna fulltrúa með bókun og umræðu um vandræðaganginn vegna lóðamála í Skarðshlíð. Skorað hefur verið á formann skipulags- og byggingarráðs að vísa málinu í eðlilegan farveg og fá úr því skorið hvort bæjarfulltrúar minnihlutans hafi brotið siðareglur. Hann hefur neitað að gera það sem og að biðjast afsökunar á ummælum sínum.
Oddvitinn þegir þunnu hljóði
Framkoma formannsins gagnvart félögum sínum í bæjarstjórn er með miklum ólíkindum en sýnir um leið viðhorf Sjálfstæðiflokksins til stjórnsýslunnar og meðferðar valds. Aðrir bæjarfulltrúar flokksins hafa lagt blessun sína yfir þessar makalausu ásakanir. Nyti Sjálfstæðisflokkurinn raunverulegrar forystu í bæjarstjórn yrði svona vitleysa að sjálfsögðu stöðvuð. Það hefur oddvitinn hins vegar ekki gert heldur lagt blessun sína yfir dylgjurnar með þögn sinni.
Ekki þöggunartæki fyrir Sjálfstæðisflokkinn
Siðareglur kjörinna fulltrúa í Hafnarfirði voru ekki hugsaðar sem þöggunartæki fyrir Sjálfstæðismenn til þess að breiða yfir málefnafátækt þeirra. Markmið reglnanna er að skilgreina það hátterni og viðmót sem ætlast er til að kjörnir fulltrúar sýni af sér við störf sín fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar. Það er kannski orðið tímabært að minna bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins á það.
Árni Rúnar Þorvaldsson skipar 5. sætið á lista Samfylkingarinnar.