fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimUmræðanFrístundir í forgang

Frístundir í forgang

Hildur Björg Vilhjálmsdóttir og Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir skrifa

Lengi vel var litið á íþróttaiðkun fyrir börn og unglinga sem leið til að efla og stuðla að heilbrigði. Töluverður hluti þeirra finnur sig hins vegar ekki við slíka iðju og hjá þeim sem þó æfa íþróttir að staðaldri verður mikið brottfall akk­ú­rat á því aldurs­bili sem síst skyldi, enda færist þá gjarn­an meiri alvara í æfingar og þær verða afreksmiðaðri.

Píratar í Hafnarfirði leggja áherslu á að styrkir til tómstunda beinist ekki sérstaklega að uppbyggingu afreksstarfs heldur sé tekið mið af heilsu- og forvarnargildi iðkunar tómstundastarfs í víðum skilningi. Því vilja Píratar í Hafnar­firði tryggja að fjölbreyttar frí­stundir og ástundunarleiðir standi ungmennum til boða og tekið sé mið af því sem ungmennin sjálf vilja, spyrjum þau og bjóðum þeim að borðinu!

Hámarksgreiðslur frístundastyrkja Hafnarfjarðar eru nú 4.500 krónur á mánuði eða 54.000 krónur á ári og ekki heimilt að nýta allan styrkinn nema ungmenni sinni tómstundum allan ársins hring eða sinni tómstundum sem hafi hlotið undanþágu vegna árstíða­bund­innar iðkunar. Til að forðast forræðis­hyggju og mis­mun­un vilja Píratar gera öllum börnum kleift að nýta allan frí­stunda­styrkinn með hóflegum skilyrð­um, en 30% barna hafa af einhverjum orsökum ekki nýtt frístundastyrk sinn á síðustu árum.

Í Hafnarfirði hafa framboð og úrræði til tómstundaiðkunar ekki haldist í hendur við framboð í öðrum sveitar­félögum. Það er því mikilvægt að ein­falda alla umgjörð um tómstundaiðju barna, svo auðvelt sé fyrir börn og for­eldra þeirra að velja tómstundir við hæfi og finna sína hillu á þessu mikil­væga mótunarskeiði. Endurskoða þarf fram­boð og stuðningsleiðir við tóm­stund­a­iðkun með því markmiði að veita fjölbreytta og góða þjónustu.

Hildur Björg Vilhjálmsdóttir og Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir,
frambjóðendur í 2. og 4. sæti fyrir Pírata í Hafnarfirði

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2