fbpx
Þriðjudagur, nóvember 5, 2024
target="_blank"
HeimUmræðanHafnarfjarðarhöfn, tækifæri framtíðarinnar

Hafnarfjarðarhöfn, tækifæri framtíðarinnar

Kristín María Thoroddsen skrifar

Hafnarfjarðarhöfn er samofin sögu okkar Hafnfirðinga og er og mun verða mikilvæg um ókomna tíð. Hafnarfjörður hefur á undanförnum árum blómstrað, færst hefur meira líf í mið­bæinn, veitingahúsum fjölgað og lista og menningarlíf hefur eflst til muna. Höfnin hér í Hafnarfirði er ákveðið að­­drátt­­ar­afl, vegna sögu sinnar, atvinnuþátta og þeim sjarma sem yfir henni hvílir og því mikilvægt að standa vörð um það.

Haldið í sögu hafnarinnar

Í vinnu við nýtt rammaskipulag fyrir Óseyrar- og Flensborgarhöfn er horft til framtíðar, þar sem saga Hafnarfjarðar er umvafin framtíðinni, þar sem haldið er í gamlar byggingar sem skapað hafa söguna, eins og Íshúsið og Drafnar­slippinn og þar sem unnið er að því að skapa jákvætt og þægilegt andrúmsloft með opnum svæðum og fjölbreyttum atvinnutæki­færum. Íbúða­byggð er fyrir­huguð austast á svæðinu eða milli Óseyrar- og Hvaleyrar­brautar.

Iðandi mannlíf og blómleg atvinnustarfsemi

Með því að tengja saman hafnarsvæðið og miðbæ Hafnarfjarðar með strand­stígn­um er í raun verið að stækka miðbæinn og efla hann til muna. Blómleg atvinnustarfsemi á hafnar­svæðinu styður við atvinnustarfsemi í miðbænum og öfugt sem hvoru tveggja gerir Hafnarfjörð að spennandi valkosti.

Við upphaf hönnunarinnar á svæðinu var lagt upp með mikið og gott samtal við íbúa. Þeir sem komið hafa að vinnunni hafa haft það að markmiði að fjölga atvinnutækifærum í Hafnarfirði og finna leið til að veita almenningi betra aðgengi og tengingu við svæðið. Tækifæri til útivistar á hafnarsvæðinu eru fjölmörg hvort sem það er fyrir unga eða aldna en til þess þarf að bæta aðgengi sem og afþreyingarmöguleika.

Í maí munu loka drög að ramma­skipulaginu liggja fyrir og spennandi verður að sjá í framhaldi og í framtíðinni hafnarsvæðið okkar fyllast af mannlífi og nýjum tækifærum með fjölbreyttri verslun og þjónustu í bland við glæsi­lega íbúabyggð.

Kristín María Thoroddsen, bæjarfulltrúi og formaður hafnarstjórnar og stýrir samráðsnefnd um uppbyggingu á Flensborgar- og Óseyrarsvæði.

Greinin birtist í Fjarðarfréttum, fréttablaði Hafnfirðinga 6. mars 2019.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2