fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimUmræðanHafnfirðingar vilja ekki vera sóðar

Hafnfirðingar vilja ekki vera sóðar

Árni Þór Finnsson skrifar

Bæjarlistanum er annt um umhverfið og vill hafa bæinn sinn snyrtilegan og lausan við rusl á víð og dreif. Gera þarf átak í fjölgun ruslatunna á göngustígum bæjarins, við leiksvæði og í almenningsgörðum.

Það er staðreynd að stór hluti sorps endar því miður í náttúrunni. Fyrir utan hvað rusl, sér í lagi plastumbúðir, í runnum, görðum, á göngustígum og tjörnum er mikið útlitslýti á annars fallegu umhverfi þá getur það beinlínis haft skaðleg áhrif eftir því sem það brotnar niður, í litlar agnir sem kunna að enda í lífverum sem síðan vinnur sig hægt og bítandi upp fæðukeðjuna með afleiðingum á heilsu fólks og dýra.

Af þessu tilefni er kjörið að minna á Stóra Plokkdaginn, sunnudaginn 24. apríl nk. Drífum okkur út og tínum rusl í okkar nærumhverfi og víðar ef sá gállinn er á ykkur.

Hjálpumst að við að hafa bæinn okkar snyrtilegan og með fjölgun ruslatunna.

Árni Þór Finnsson,
skipar 3. sæti á Bæjarlistanum

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2