Í vinnu við fjárhagsáætlun vegna ársins 2020 var ákveðið að gera tillögu að breytingum á nokkrum liðum í gjaldskrá fjölskylduráðs.
Gjaldskráin er í ellefu liðum og nær breytingin til þriggja liða. Aðrir liðir gjaldskrár eru óbreyttir. Hér fyrir neðan eru þær breytingar sem fyrir liggur tillaga um að gera:
– Frá 1. janúar 2020 kostar hver ferð í akstursþjónustu eldri borgara 470 kr. Viðmið er almennt fargjald Strætó. Til samanburðar þá kostar hver ferð 1185 kr. í Reykjavík og 500 kr. í Kópavogi fyrstu 16 ferðirnar, eftir það 1000 kr.
– Frá 1. janúar 2020 kostar hver klst. í heimaþjónustu eldri borgar og öryrkja 757 kr. Til samanburðar þá kostar hver klst. 990 kr. í Kópavogi og 1235 kr. í Reykjavík.
Þrátt fyrir þessa breytingu mun gjaldskrá á Fjölskyldusviði hér í Hafnarfirði áfram verða sú lægsta þegar horft er til samanburðarsveitarfélaga.
Sérstakur húsnæðisstuðningur einnig í boði fyrir leigjendur í félagslega húsnæðiskerfinu
Fjölskylduráð hefur samþykkt breytingu á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning þess efnis að leigjendur í félagslega húsnæðiskerfinu í Hafnarfirði munu eiga sama rétt til sérstaks húsnæðisstuðnings og aðrir leigjendur að uppfylltum almennum skilyrðum samkvæmt lögum um húsnæðisstuðning og sérstakar húsnæðisbætur. Þessi stuðningur kemur til mótvægis við 21% hækkun á leigu í félagslega húsnæðiskerfinu.
Eftir sem áður verður leigan mun lægri í samanburði við önnur óhagnaðardrifin leigufélög sem rekin eru á sömu forsendum.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra leggja ríka áherslu á að þjónusta bæjarbúa sem best og gæta jafnræðis og samræmis í kostnaðarhlutdeild og jafnframt að kostnaður fyrir okkar íbúa sé lægstur samanborið við nágrannasveitarfélögin og það heldur sér þrátt fyrir þessar breytingar.
Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í fjölskylduráði
Helga Ingólfsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í fjölskylduráði
Valdimar Víðisson, fulltrúi Framsóknar og óháðra í fjölskylduráði.