fbpx
Þriðjudagur, október 15, 2024
target="_blank"
HeimUmræðanHittumst og höngsum í félagsmiðstöðvunum

Hittumst og höngsum í félagsmiðstöðvunum

Stella B. Kristinsdóttir skrifar

Haustið er tíminn til að tengjast. Þetta er tíminn þar sem við hittum félagana eftir langt sumarfrí og tökum upp þráðinn þar sem frá var horfið. Það er einmitt svo mikilvægt að vera í sambandi við hvert annað og halda góðum tengslum. Já, plögga sig aftur í samband.

Þátttaka í skipulögðu tóm­stunda- og íþróttastarfi er verndandi þáttur í lífi barna og ungmenna. Það á við um íþróttastarf, félagsstarf í æskulýðsfélögum, tónlistarnám eða þátttöku í starfi félagsmiðstöðva. Mig langar að minna á valkostinn að njóta frítímans í skipulögðu félags­miðstöðvastarfi.

Við erum svo heppinn að við höfum félagsmiðstöðvar í okkar nærsamfélagi! Hlutverk þeirra er að bjóða börnum og unglingum á aldrinum 10-16 ára upp á frístundastarf sem hefur forvarnar-, uppeldis- og menntunargildi og tekur mið af aldri þeirra og þroska.
Í starfi félagsmiðstöðva leggur starfsfólk ríka áherslu á að skapa einstaka menningu og öruggt umhverfi með börnum og ungmennum. Þátttaka í skipulögðu starfi félagsmiðstöðva og ungmennahúsa með fagfólki hefur mikilvægt forvarnargildi og eykur líkur á því að ungt fólk kjósi heilbrigðan lífsstíl og forðist áhættuhegðun.

Þar er boðið upp á afþreyingaraðstöðu og samveru jafnaldra í bland við viðburði, stóra sem smáa. Áhersla er lögð á að virkja börn og ungmenni til þátttöku í starfinu og er dagskrá fjölbreytt og unnin með ungmennum.

Félagsmiðstöðvar sinna einnig vettvangsstarfi bæði í sínu nærumhverfi og svo sameiginlega í starfi Götuvitans sem er flakkandi félagsmiðstöð.

Götuvitinn sinnir vettvangsstarfi eftir lögbundinn útivistartíma í samstarfi við foreldrafélög en er einnig kominn í samstarf við önnur sveitarfélög á stórhöfuðborgarsvæðinu.
Öll eru velkomin í félagsmiðstöðina og hvet ég aðstandendur til að kanna dagskrána í félagsmiðstöðinni með barninu, kíkja með þeim þangað eða hvetja þau til nýta sér hana til að hittast og hangsa.

Félagsmiðstöðvar eru opnar í öllum skólum mánudaga, miðvikudaga og föstu­daga seinni part dags og fram á kvöld, einnig er HHH hinsegin félags­miðstöðin opin á fimmtudögum og Músík og mótor alla virka daga 17-22.

Frekar upplýsingar um félags­miðstöðvar í Hafnarfirði er að finna á vef Hafnarfjarðarbæjar.

Stella B. Kristinsdóttir
fagstjóri forvarna- og frístundastarfs hjá Hafnarfjarðarbæ.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2