Nú er það formlega orðið ljóst að sjálfstæðismenn í Reykjavík eru á móti stærsta og metnaðarfyllsta verkefni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, Borgarlínunni. Þessa afstöðu sína staðfestu þeir með mótatkvæði sínu gegn samþykkt svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins. Með atkvæði sínu eru sjálfstæðismenn að ganga gegn margra ára vinnu allra sveitarfélaganna á svæðinu. Einir flokka standast þeir ekki þá freistni að snúa stóru hagsmunamáli fjöldanns upp í stökkpall fyrir sérhagsmuni frambjóðanda sinna.
En um hvað snýst Borgarlínan og skiptir hún máli fyrir okkur hér í Hafnarfirði? Borgarlínan er vissulega strætó í sérrými með örari ferðatíðni sem myndi gera strætó að hagkvæmum og raunhæfum farkosti. Þetta skiptir máli fyrir margar fjölskyldur hér í Firðinum. Það er mun ódýrara að kaupa árskort í strætó en að reka heimilisbíl númer tvö eða þrjú. Ætli munurinn sé ekki einn á móti fimmtán (kr. 72.000 fyrir árskort í strætó á móti kr. 1.100.000 fyrir rekstur og afskrifir á ódýrum fólksbíl samkvæmt FÍB).
En Borgarlínan er annað og meira. Hún er grundvallar hugsun í skipulagsmálum alls höfuðborgarsvæðisins. Borgarlínan er forsenda þess að hægt sé að skipuleggja fjölmenn íbúðahverfi án þess að bílastæði fylgi hverri einustu íbúð eins og lagt er til í rammaskipulagi vestur hraunsins eða 5 mínútna hverfisins eins og það hefur verið nefnt. Í því hverfi er gert ráð fyrir allt að 7.000 íbúum sem er um 10% af allri fjölgun íbúa höfuðborgarsvæðisins fram til ársins 2040. Borgarlínan er þannig forsenda þess að hægt sé að byggja upp slíkt hverfi með hagkvæmum íbúðum sem þó eru tengdar kjarna atvinnusvæðisins með öflugum almenningssamgöngum.
5 mínútna hverfið og Borgarlínan eru hvort um sig dæmi um langtímahugsun og samvinnu í skipulagsmálum sem þarf að ná þvert á flokka og yfir mörg kjörtímabil. Sjálfstæðismenn hér í Hafnarfirði hafa leitt endurskipulagningu 5 mínútna hverfisins á þessu kjörtímabili. Við í Samfylkingunni munum hiklaust halda þeirri góðu vinnu áfram komumst við í aðstöðu til þess. Við munum einnig leggja áherslu á að Borgarlínan verði að veruleika sem allra fyrst. Við í Samfylkingunni föllum ekki í þá freistni að gera lítið úr vinnu annara til þess að upphefja okkur sjálf.
Einar Pétur Heiðarsstjóri verkefnastjóri
og skipar 9. sæti á lista Samfylkingarinnar.