fbpx
Mánudagur, nóvember 25, 2024
target="_blank"
HeimUmræðanKnatthús og reiðhöll - undirbúningurinn endalausi 

Knatthús og reiðhöll – undirbúningurinn endalausi 

Stefán Már Gunnlaugsson skrifar

Undirbúningur að byggingu reiðskemmu Sörla og knatthúss Hauka hefur staðið árum saman. Í gær var  samþykkt í bæjarráði Hafnarfjarðar að fela umhverfis- og skipulagssviði að undirbúa útboð á fyrstu áfangum á knatthúsi Hauka og reiðhöll. Á einföldu máli þýðir bókunin fyrir Sörla og Hauka að halda skuli áfram að undirbúa það sem hefur verið í undirbúningi allt kjörtímabilið. Og skóflustunga var tekin að báðum framkvæmdum fyrir tæpu ári, en eina sem hefur gerst er að búið er að moka ofan í þær aftur. Samþykkt bæjarráðs í gær er því svokölluð, “EKKI FRÉTT”. Halda á undirbúningi áfram sem þegar hefur verið gangi misserum saman.

Innihaldslaus loforð

Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur sögðu á fundum með félagsmönnum Sörla og  Hauka í apríl, að undirbúningi að reiðhöll og knatthúss væri lokið og útboð á framkvæmdum yrði auglýst næstu daga. Hvorugt hefur gerst. Og mun ekki eiga sér stað á kjörtímabilinu. Þessi loforð reyndust innihaldslaus. Sörlamenn og Haukamenn sitja eftir með loforð – en engar efndir.

Látum verkin tala

Við jafnaðarmenn stöndum við gefin loforð. Við höfum lýst því skýlaust yfir að við munum standa við áform og loforð um byggingu reiðskemmu og knatthúss. Þegar við tökum við stjórn bæjarins eftir bæjarstjórnarkosningarnar 14. maí nk. munum við ganga í málin og og láta verkin tala – að sjálfsögðu!

Stefán Már Gunnlaugsson,
skipar 5. sæti lista Samfylkingarinnar – jafnaðarmanna í Hafnarfirði og er í starfshópi um uppbyggingu reiðhallar Sörla

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2