fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirPólitíkSamfylkingin fyrir fjölskylduna

Samfylkingin fyrir fjölskylduna

Stefán Már Gunnlaugsson skrifar

Ég á góðar æskuminningar úr Hafnar­firði. Allt innan seilingar, skólinn og íþróttahúsið, lifandi miðbær með verslun, góðri þjónustu og kvikmyndahúsum og hraunið einstakt til leikja og útivistar. Svo liðu árin og kom að því, þegar við hjónin áttum von á okkar fyrsta barni, að ákveða hvar við vildum búa og ala börnin okkar til frambúðar. Hafnarfjörður varð fyrir valinu. Hér var fast­eignaverð hagstætt, lægri leik­skólagjöld og búið vel að börn­um, góður skóli, frí­stunda­styrkir vegna íþrótta- og tóm­stunda og öflugt félagslíf. Þá voru jafn­­­aðar­menn í meirihluta við stjórn Hafn­ar­fjarðar.

Álögur og einkavæðing Íhaldsins

Það skiptir máli fyrir unga fólkið að hafa aðgang að góðu og hagkvæmu húsnæði og vel sé búið að félagslegri þjónustu, sem taki mið af þörfum barnanna með sann­gjörnum gjöldum. Það tekur á í samfélagi nútímans að stofna fjölskyldu. Báðir for­eldrar á kafi í vinnu til þess að ná endum saman, standa í skilum með leiguna eða lán­in á íbúðinni, og borga fyrir þjónustuna fyrir börnin. Þetta er fólkið sem á að vera í fyrirrúmi. Því miður hefur sú ekki verið raunin í tíð núverandi meirihluta við stjórn Hafnar­fjarðar frekar en Íhaldsins við stjórn landsins. Þar eru aðrir í forgangi. Skatta­lækkanir gagn­ast aðeins hinum efnameiri sem er hyglað eins og frekast má, á meðan álögur eru auknar á fólkið með lægri tekjur. Rekstri ungbarnaleikskóla var t.d. hætt hér í bæ og hverfis­leikskóla lokað. Þá eru álögur og gjöld á barnafjölskyldur í Hafnar­firði með því hæsta sem gerist á höfuðborgarsvæðinu. Og nú boðar Íhaldið að nýloknum landsfundi sínum, að allt mögulegt og ómögulegt eigi að einkavæða, skólana og heilbrigðisþjónustuna líka. Bitur er reynslan af þeim tilraunum Íhalds­ins í Hafnarfirði.

Fjölskyldubærinn Hafnarfjörður

Jafnaðarmenn hafa verið í forystu að standa vörð um þarfir barnafjölskyldna og enn búum við að þeim trausta grunni sem lagður var, þegar jafnaðarmenn fóru með stjórn bæjarins. Barátta jafnaðarmanna, að námsgögn væru á ókeypis fyrir grunn­skóla­­börnin bar hér árangur, þegar núver­andi meirihluti neyddist til að samþykkja það rétt fyrir skólabyrjun síðasta haust. Brýnt er að jafna aðstöðumun og gera öll­um börnum kleift að stunda íþrótta- og tóm­­stundarstarf. Koma verður á móts við unga fólkið með ódýrari búsetuúrræðum, gæta hófs í álögum og gjöldum og stefna á gjald­frjálsan leikskóla. Enn fremur gildir náið samstarf við íþrótta- og tómstunda­félög­in sem taki m.a. mið af því að fjölskyldan hafi líka tíma fyrir sig saman. Gerum Hafnarfjörð aftur að fyrirmyndarbæ fyrir fjölskylduna með Samfylkingunni.

Stefán Már Gunnlaugsson
skipar 4. sætið á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.

Greinin birtist í Fjarðarfréttum 5. apríl 2018.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2