fbpx
Sunnudagur, júlí 14, 2024
HeimUmræðanSkuldbindandi samkomulag um Tækniskólann

Skuldbindandi samkomulag um Tækniskólann

Það var stór stund hér í Hafnarfirði í síðustu viku þegar stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis að nýr Tækniskóli verði staðsettur í Hafnarfirði. Samkomulagið er í fullu samræmi við núverandi stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.

Verkefnisstjórn um framtíðarhúsnæði Tækniskólans

Núverandi mennta- og barnamálaráðherra skipaði verkefnisstjórn um framtíðarhúsnæði Tækniskólans sem skipuð var fulltrúum þeirra ráðuneyta sem hafa haft aðkomu að málum; forsætisráðuneytinu, mennta- og barnamálaráðuneytinu, fjármála- og efnahagsráðuneytinu auk fulltrúa frá Hafnarfjarðarbæ og Tækniskólans. Verkefnisstjórnin skilaði af sér fyrir ári síðan og frá þeim tíma hefur verið unnið í samræmi við þá áætlun sem lagt var upp með. Það má því segja að afrakstur mikillar vinnu síðustu ára sé nú að koma í ljós og ánægjulegt að sjá raungerast. Ég er þakklátur mennta- og barnamálaráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni, fyrir að hafa treyst mér fyrir því að leiða verkefnisstjórn um þetta mikilvæga verkefni sem skilar svo þessari niðurstöðu. Hann hefur haft mikla trú á verkefninu frá upphafi og fylgt því fast eftir.

Stórt skref í eflingu verk- og starfsnáms

Það hefur verið forgangsverkefni menntamálaráðherra og Framsóknar á kjörtímabilinu að efla verk- og starfsnám. Ljóst er eftirspurnin er til staðar, bæði meðal nemenda og atvinnulífsins og því ánægjulegt að við stígum þetta mikilvæga skref til að mæta þeirri þörf og svara því ákalli sem við heyrum svo skýrt. Húsakostur Tækniskólans er kominn til ára sinna. Í dag fer starfsemi skólans fram í átta byggingum á fimm stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Bygging nýs Tækniskóla markar því umbyltingu í aðstöðu til iðn-, starfs- og tæknináms á höfuðborgarsvæðinu. Hér er verið að bregðast við aukinni eftirspurn eftir náminu og mæta þörfum atvinnulífsins og koma skólanum undir eitt þak. Nú hefst undirbúningur við hönnun og framkvæmdir með áætluð verklok haustið 2029.

Framsýni skilar árangri, líka í samgöngumálum

Ég hef lengi talað við fyrir því að opinberum stofnunum, skólum og stórum vinnustöðum sem hér þurfa að vera á svæðinu sé dreift með skynsamlegum hætti um höfuðborgarsvæðið. Það er gamaldags hugsun að halda að allt þurfi að staðsetja í miðborg Reykjavíkur með tilheyrandi áhrifum og álagi á gatnakerfið. Við verðum að hætta að keyra alla í sömu átt snemma morguns og til baka seinni part dags. Þetta þekkjum við of vel. Með því að taka ákvörðun um að byggja Tækniskólann í Hafnarfirði er verið að vinna í samræmi við þá hugsun og ég veit að framkvæmd sem þessi mun skipta íbúa á höfuðborgarsvæðinu gríðarlegu máli. Við þurfum meira svona.

Það er líka rétt að vissulega mun bygging og starfsemi sem þessi hafa áhrif á innviði í Hafnarfirði. Ég treysti bæjaryfirvöldum vel til þess að leysa farsællega úr þeim málum, en slíkar áhyggjur mega aldrei draga úr krafti okkar sem berjumst fyrir aukinni uppbyggingu, kröftugu atvinnulífi og betra samfélagi. Að lokum öllum þeim sem hafa komið að málum kærlega fyrir og óska Hafnfirðingum öllum til hamingju enda verkefnið mikil lyftistöng fyrir bæjarfélagið. Svona vinnur Framsókn.

Ágúst Bjarni Garðarsson,
þingmaður Framsóknar, fyrrv. formaður verkefnisstjórnar um framtíðarhúsnæði Tækniskólans, frv. bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs í Hafnarfirði.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2