fbpx
Sunnudagur, júlí 14, 2024
HeimFréttirUmhverfiðStraumsvík, iðnaðarsvæðið og framtíðin

Straumsvík, iðnaðarsvæðið og framtíðin

Ólafur Elínarson skrifar

Árlega heimsækja tugþúsundir ein­staklinga á öllum aldri niðurdælingar­svæði Carbfix á Hellisheiði vegna áhuga á því hvernig Íslending­ar nýta endurnýjanlega orku og hvern­ig við tökumst á við loftslags­vandann með aðferð­um Carb­fix.

Aðferðin er bæði örugg og sönnuð og er leiðandi í heim­inum vegna þess að hún er vottuð, þrautreynd, hagkvæm og varanleg. Enda er aðferðin byggð á sömu aðferðum og náttúran sjálf nýtir við að binda CO2. Regndropar grípa CO2 í and­rúms­loftinu og þegar droparnir mæta bergi verða til steindir með tíð og tíma.

Carbfix hefur síðan 2014 dregið úr losun á CO2 og brennisteinsvetni frá Hellisheiðarvirkjun, fangað CO2 beint úr andrúmslofti með svissneska fyrirtækinu Climeworks frá árinu 2017 og flutt inn CO2 frá Sviss síðan 2023 í samvinnu við ETH háskólann í Zurich. Í öllum tilfellum hefur þetta CO2 stein­runnið í berginu djúpt undir yfirborðinu án nokkurra vandkvæða.

Mikil og lífleg umræða hefur átt sér stað um loftslagsverkefnið Coda Termi­nal sem Carbfix er að undirbúa og verður flaggskip í lausnum Íslands gegn hlýnun jarðar og hefur verið sýnt mikið traust með því hljóta stærsta styrk sem Ísland hefur fengið frá Evrópusambandinu.

Mörg sem taka þátt í umræðunni nýta sér upplýsingar í umhverfis­mats­skýrslunni sem unnin var fyrir verkefnið og fögnum við því og hvetjum öll til að kynna sér hana og heimasíðu verkefn­isins sem hefur að geyma áreiðanlegar upplýs­ingar Coda Terminal. Sérstaklega hvernig Carbfix mun lág­marka þau umhverfis­áhrif sem verkefnið hefur.

Tilgangur umhverfismats­skýrslu er einmitt það, að finna leiðir til að vinna gegn þeim áhrifum sem verkefni geta mögu­­lega valdið.

Þess vegna eru tilgreindar mót­vægisaðgerðir og út frá þátttöku stofnana, sérfræðinga og almenn­ings bætist við þekking í ferlinu. Það er einmitt mikilvægt að leggja áherslu á að umhverfismatsskýrsla er ekki lokaafurð verkefna. Hún er tæki til þess að skapa upplýsta umræðu byggða á bestu þekkingu á hverjum tíma.

Coda Terminal verður hljóðlaus viðbót við iðnaðarsvæði Hafnfirðinga, þar sem ekki þarf að flytja neitt á veg­unum, með engan útblástur á svæðinu. Í lögnunum neðanjarðar mun flæða 96% vatn og 4% CO2 á hverjum tíma sem er minna CO2 en stafar frá núver­andi bílaumferð á svæð­inu.

Verkefnið gæti orðið upphaf að nýrri hugsun í iðnaði á svæðinu þar sem að­­stæður og umhverfi geta hæglega orðið með betra móti en nú er. Bæði núverandi og ný fyrirtæki geta unnið saman að því að hafa raunveruleg áhrif á umhverfi og náttúru, ásamt því að takast á við loftslagsvandann á þann hátt að eftir verður tekið. Það er spennandi framtíð.

Ólafur Elínarson,
leiðir samskiptamál hjá Carbfix.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2