fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimUmræðanSumaropnanir leikskóla í uppnámi

Sumaropnanir leikskóla í uppnámi

Hólmfríður Þórisdóttir og Bjarney Grendal Jóhannesdóttir skrifa

Nýverið samþykkti meirihluti fræðsluráðs Hafnarfjarðar að leikskólar bæjarins yrðu opnir allt árið og sumarlokanir framvegis úr sögunni frá  sumrinu 2021. Ákvörðun þessi var tekin á fundi ráðsins 12. febrúar sl. og þá þegar var ljóst að breytingin legðist illa í starfsmenn leikskóla og leikskólastjóra sem mótmæltu áformum þessum  kröftuglega. Á  þeim fundi lagði fulltrúi Miðflokksins fram þá tillögu að málinu yrði frestað og málið yrði unnið í sátt við þá er málið varðar. Þá var óskað eftir því að starfshópur yrði stofnaður sem myndi gefa hlutaðeigandi kost á því að fara yfir málið og leita lausna.

Niðurstaðan varð sú að tillagan um sumaropnun leikskóla var samþykkt með 3 atkvæðum meirihlutans  en minnihluti ráðsins sat hjá. Þá var samþykkt að  stofnaður yrði starfshópur sem átti að taka á málinu eftir að það var afgreitt í fræðsluráði.

Ekki er búið að reikna út kostnað við þessar breytingar þannig að það veit enginn hvað þær kosta. Ekki er vitað hversu marga þarf að ráða inn á leikskólana til afleysinga þegar fastráðið starfsfólk tekur sitt sumarleyfi en á fundi ráðsins kom upp sú hugmynd að ráða unglinga frá vinnuskólanum inná leikskólana til afleysinga. Ekkert er vitað um hvaða áhrif þessi breyting hefur á faglega starfsemi leikskólanna til lengri eða skemmri tíma.  Ekkert samráð var við sérfræðingana í þessu máli; starfsfólk leikskólanna og leikskólastjóra. Sem sagt, ákvörðunin var tekin án þess að nauðsynlegra upplýsinga hafi verið aflað og því er spurt á hvaða grunni þessi ákvörðun var tekin?

Á fundi fræðsluráðs 26. febrúar var lagður fram listi með undirskriftum 390 starfsmanna leikskólanna sem mótmæla harðlega þessari ákvörðun. Það eru rúmlega 80% starfsfólk leikskólanna í Hafnarfirði.  Á máli fulltrúa leikskólastigsins í ráðinu sem og í samfélaginu okkar hér í Hafnarfirði hefur mátt heyra mikla reiði og undrun vegna þessarar ákvörðunar.  Nefndar hafa verið fjöldauppsagnir og fleira í þeim dúr sem vonandi verður ekki að veruleika og meirihluti fræðsluráðs bregðist við og dragi ákvörðun sína til baka.

Mál þetta allt og málatilbúnaður er á skjön við þá stefnu Miðflokksins að halda í fagfólk skólanna og vinna að bættum starfsaðstæðum í leikskólum bæjarins.

Fulltrúar Miðflokksins í fræðsluráði standa heilshugar  að baki starfsfólki leikskólanna í þessu máli, of mikið er undir eða sátt um fyrsta skólastigið í bænum okkar.

Hólmfríður Þórisdóttir,
Bjarney Grendal Jóhannesdóttir,
fulltrúar Miðflokksins í fræðsluráði Hafnarfjarðar.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2