Fjárhagsáætlunarvinna Hafnarfjarðarbæjar fyrir 2020 er langt komin. Fjölskylduráð kláraði sína vinnu á fundi þann 17. október sl. Vönduð og góð vinna sem hefur átt sér stað meðal embættismanna og ráðsmanna undanfarnar vikur og mánuði.
Leiðrétting á gjaldskrá
Við hér í Hafnarfirði höfum verið með lægstu gjaldskrána þegar borin eru saman sveitarfélögin hér á höfuðborgarsvæðinu. Hinsvegar höfum við dregist mjög afturúr öðrum sveitarfélögum sem hafa reglulega endurskoðað sínar gjaldskrár. Meirihlutinn leggur á það áherslu að gjaldskrá á fjölskyldu- og barnamálasviði sé áfram sú lægsta þegar horft er til samanburðarsveitarfélaga. En til þess að halda góðu þjónustustigi þá er mikilvægt að fara í að leiðrétta gjaldskrá.
Gjaldskráin er í ellefu liðum. Leiðrétting nær til fjögurra liða gjaldskrár. Til að setja leiðréttinguna í samhengi þá má t.d. nefna að hver ferð í ferðaþjónustu eldri borgara kostar 240 kr. en frá 1. janúar kostar hver ferð 470 kr. Til samanburðar þá kostar hver ferð í Reykjavík 1.185 kr. og í Kópavogi kostar hver ferð 500 kr. fyrstu 16 ferðirnar, eftir það 1.000 kr. Einnig var leiðrétting þegar kemur að gjaldi í heimaþjónustu eldri borgara og öryrkja. Hver klst. kostar 610 kr. en frá 1. janúar 2020 kostar hver klst. 757 kr. Til samanburðar þá kostar hver klst. 1.235 kr. í Reykjavík en 990 kr. í Kópavogi fyrir þá sem eru með tekjur uppá 372.960 kr. eða hærra.
Þrátt fyrir þessa leiðréttingu er gjaldskrá á fjölskyldu- og barnamálasviði hér í Hafnarfirði áfram sú lægsta þegar horft er til samanburðarsveitarfélaga.
Ítarlegri upplýsingar um leiðréttingu á gjaldskrá má finna í fundargerð fjölskylduráðs frá 17.okt. sl. Sú fundargerð er aðgengileg á vef Hafnarfjarðarbæjar.
Meirihlutinn leggur á það ríka áherslu að þjónustistigið sé hátt á fjölsyldu- og barnamálasviði og kostnaður fyrir notendur sé sá lægsti þegar sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu eru borin saman. Það heldur sér þrátt fyrir leiðréttingu á gjaldskrá.
Það er gott að búa í Hafnarfirði.
Valdimar Víðisson, formaður fjölskylduráðs.