fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimUmræðanÞað þarf reynslu og hæfni - XS

Það þarf reynslu og hæfni – XS

Árni Páll Árnson skrifar:

Í kosningunum um næstu helgi stefnir allt í að breytingar verði á landsstjórninni og að núverandi stjórn­arflokkar missi meirihluta sinn. Spár benda til að allt að 40 þingmenn af 63 verði nýir þingmenn. Mikill sam­hljómur er milli þeirra flokka sem að líkum verða í meiri­hluta og valið er því erfitt fyrir kjósendur. Við í Samfylk­ingunni minnum á að við þess­ar aðstæður skiptir reynsla af landsstjórn og stjórn stórra sveitarfélaga öllu máli.

Umbótaöfl á Íslandi hafa af því bitra reynslu að hafa miklar vonir um breytingar en sjá svo sundrungu og reynsluleysi ráða því að við náum ekki þjóðþrifamálum fram, andspænis fyrirstöðu valdakerfis og hagsmuna­aðila.

Við í Samfylkingunni búum að 100 ára sögu samfélagsumbóta, viljum breytingar og höfum reynslu af því að koma breytingum í gegn af ákveðni, en í víðtækri sátt. Stjórn okkar hér í Hafnarfirði er gott dæmi um það. Hreyf­ing jafnaðarmanna getur stært sig af því að koma á almannatryggingum, atvinnuleysistryggingum, verkamanna­bústöðum, almennum fræðslulögum og stærstu áföngunum í kvenfrelsisbaráttu og náttúruvernd. Við náðum líka í ríkisstjórnartíð okkar í hruninu að leiða farsæla efnahagsstjórn, tryggja frið á vinnumarkaði, forðast að ríkisvæða tap fjármálafyrirtækja og einstaklinga og byggja upp samningsstöðu gagnvart erlendum kröfuhöfum. Á sama tíma vörðum við velferðarútgjöld öðru fremur svo eftir hefur verið tekið um allan heim. Og við réðumst í stórfellda uppbyggingu hjúkrunarrýma sem þetta kjördæmi naut góðs af og aldrei hafði verið fjár­magn til að byggja á góðæris­tímum. Við höfum líka öðlast reynslu af því að ná breyting­um ekki í gegn og að þurfa að sætta okkur við áfangasigra.

Það sem mestu skiptir er að við höfum á langri vegferð lært að finna færa leið og alltaf sett almannahagsmuni framar sérhagsmunum í öllum okkar verkum. Við erum stolt af okkar arfleifð og erum alltaf jafnaðarmenn – ekki bara fyrir kosningar.

Í kosningunum næsta laugardag á Samfylkingin möguleika á að halda 2 þingmönnum hér í kjördæminu. Margrét Gauja Magnúsdóttir, kennari og bæjarfulltrúi í Hafnarfirði á góða möguleika á þingsæti og það yrði fengur að henni fyrir kjördæmið. Samfylkingin býður upp á reynslu og hæfni við stjórn landsins. Við biðjum um stuðning þinn í kosningunum á laugardag, til að tryggja Samfylkingunni áhrif við landsstjórnina á næsta kjör­tímabili.

Árni Páll Árnason alþingismaður
skipar 1. sætið á lista Samfylkingar­innar í Suðvesturkjördæmi.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2