fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimUmræðanVinsæll frístunda­styrkur fyrir eldri borgara

Vinsæll frístunda­styrkur fyrir eldri borgara

Helga Ingólfsdóttir bæjarfulltrúi skrifar

Hafnarfjörður er fyrsta sveitarfélagið til að bjóða eldri borgunum frí­stunda­styrk til greiðsluþáttöku vegna íþrótta og tómstunda­starfi eldri borgara. Mark­miðið er að gera eldri íbúum kleift að taka þátt í íþrótta og tómstundastarfi óháð efnahag og efla almennt heilbrigði og hreysti þessa aldurshóps.

861 fengu frí­stunda­­­styrk 2018

Frístundastyrkurinn hefur mælst vel fyrir hjá eldri borgunum bæjarins en um er að ræða 4 þúsund krónur á mán­uði eða 48 þúsund krónur á ári. Styrkurinn greiðist með framvísun kvittunar í Þjónustuveri Hafnar­fjarðar­bæjar þar sem starfsmenn veita ennfremur allar frekari upp­lýsingar.

Frá því frístundastyrkurinn var hækkaður í ársbyrjun 2018 hefur veruleg fjölgun verið í hópi eldri borgara sem nýta sér þennan styrk sem er ákaflega ánægjulegt því þá er einmitt markmiðinu náð sem er að að auka möguleika eldra fólks á því að stunda fjölbreytta hreyf­ingu og heilsueflingu.

Helga Ingólfsdóttir,
bæjarfulltrúi og varaformaður fjölskylduráðs

 

Greinin birtist í Fjarðarfréttum, fréttablaði Hafnfirðinga 7. febrúar 2019

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2