fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirMenning og mannlíf25. Ratleikur Hafnarfjarðar hafinn

25. Ratleikur Hafnarfjarðar hafinn

27 ratleiksmerki er að finna vítt um bæjarlandið sem þátttakendur hafa allt sumarið til að finna

Ratleikur Hafnarfjarðar nýtur sívaxandi vinsælda enda frábær leikur sem dregur fólk vítt og breitt um bæjarlandið, og jafnvel víðar, þar sem ýmsar perlur er að finna, merki um mannvist fyrri alda og náttúruvætti.

Ratleikurinn hófst föstudaginn 3. júní er mæðgurnar Bára Hálfdanardóttir og Sóley Harpa Aronsdóttir fengu afhent fyrstu kortin en Sóley er aðeins 2ja ára og tók fyrst þátt í leiknum í móður­kviði. Bára hefur tekið þátt í leiknum í um sjö ár og er í góðum hópi sem kallar sig Gönguhópurinn hvatvísi sem hún segir oft fara af stað í meiri bjartsýni en fyrirhyggju. Sóley hefur tvö síðustu ár farið með í leikinn og notið útivistarinn­ar.

Víða eru þjóðleiðirnar vel markaðar

Í ár eru það gamlar þjóðleiðir, götur og stígar sem er þema leiksins en víða um bæjarlandið má finna ummerki um ferðir íbúa fyrri alda sem hafa markað spor í jarðveginn á leið sinni t.d. til næstu verbúðar eða í sel.

Leikur fyrir alla

Leikurinn hentar því sem næst öllum og fólk hefur val um að leita að hluta af merkjunum eða þeim öllum 27 og keppa um það að verða Þrautakóngur ársins. Finni fólk 18 merki og skilar inn lausnum getur það átt möguleika á að verða útnefnt Göngugarpur ársins og þeir sem finna 9 merki geta hlotið nafnbótina Léttfeti ársins.

Veitt eru vegleg verðlaun sem fyrir­tæki hafa af rausnarskap gefið og einnig útdráttarverðlaun sem þeir eiga möguleika á að fá sem mæta á upp­skeru­hátíðina í haust en leikurinn stendur til 26. september nk.

Frítt útivistarkort

Gefið er út vandað útivistarkort sem fæst án endurgjalds á ýmsum stöðum í bænum, m.a. á sundstöðum, í Bóka­safninu, í Fjarðarkaupum og víðar.

Við Fjallgrensvörðu við Stórhöfðastíg

Það er Hönnunarhúsið ehf. sem gefur út leikinn í samstarfi við Hafnar­fjarðar­bæ en aðalstyrktaraðili leiksins í ár er Rio Tinto á Íslandi. Guðni Gíslason lagði leikinn í 15. sinn en Ómar Smári Ármannsson hefur veitt ómetanlega aðstoð en hann heldur úti fróðleiks­síðunni ferlir.is þar sem finna má ógrynni af fróðleik um Reykjanesið.

Nánar má sjá um leikinn á ratleikur.fjardarfrettir.is og á Facebook síðunni Ratleikur Hafnarfjarðar.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2