fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimÚtivistGönguskíðabrautir á Hvaleyrarvelli

Gönguskíðabrautir á Hvaleyrarvelli

Eins og tveggja km skíðabrautir lagðar á golfvellinum á Hvaleyri

Golfklúbburinn Keilir, í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ, hefur lagt tvær gönguskíðabrautir á Hvaleyrarvelli.

Önnur brautin er um 1 km og byrjar neðan við skálann og fer um Hvaleyrina.

Hin brautin er um 2 km og byrjar við bílastæðin hjá Hraunkoti og fer yfir þann völl sem í daglegu tali heitir Hraunið.

Brautirnar eru því mislangar og miserfiðar og ættu því að henta flestum. Upphaf brautanna er merkt með pallettum til bráðabirgða sem ættu að sjást auðveldlega og kort væntanlegt.

Til stendur að Golfklúbburinn Keilir viðhaldi þeim brautum sem lagðar verða á gólfvöllinn á meðan snjór og frost eru áfram í kortunum og vallarstarfsmenn þiggja allar góðar ábendingar.

Var sleði til að gera brautirnar búinn til í gær eftir skoðun á sambærilegu tæki annars staðar og var dráttarvél notuð til að draga sleðinn og gera brautina.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2